Sagan
Yfir 50 ára saga af handverki, gæðum og þróun.
Frá stofnun fyrirtækisins á Selfossi árið 1973 hefur Selós tekið þátt í uppbyggingu fjölmargra mannvirkja og þróast í takt við breyttar þarfir byggingariðnaðarins.
Hér eru helstu áfangar í sögu fyrirtækisins.

Sýningarsalur í Reykjavík
Árið 2026 var settur upp glæsilegur sýningarsalur að Síðumúla 16 í Reykjavík undir merkjum TAUMONA, þar sem kynntar eru innréttingalausnir fyrirtækisins og framleiðsla samstarfsaðila þess. Í dag byggir Selós áfram á meira en hálfrar aldar reynslu í innréttingum, þar sem hefð handverks, fagmennska og gæði eru leiðarljós fyrirtækisins
Fjölbreytt verkefni um allt land
Frá upphafi samstarfs Selós og Taumona hafa verið framleiddar og afhentar innréttingar fyrir fjölmörg verkefni, meðal annars Hótel Selfoss, Stracta Hótel, Fjölbrautarskóla Suðurlands, Landsbankann, Dalskóla, Helgafellsskóla, Bláa lónið, hjúkrunarheimili á Seltjarnarnesi og Hvolsvelli ásamt dvalarheimili og íbúðum fyrir Sjómannadagsráð. Einnig hafa verið framleiddar innréttingar fyrir leikskóla og verslanir auk þess sem Selós hefur afgreitt og annast uppsetningu á innréttingum í um 3.000 íbúðir.
Framleiðslu á Íslandi hætt
Árið 2012 var tekin ákvörðun um að hætta allri framleiðslu á Íslandi. Í kjölfarið breyttist rekstur fyrirtækisins og aukin áhersla var lögð á samstarf við erlenda framleiðendur.
Samstarf við Taumona hefst
Selós hóf samstarf við litháíska framleiðandann Taumona, sem framleiðir innréttingar byggðar á þeirri hugmyndafræði og gæðum sem Selós hafði þróað á eigin verkstæði í áratugi.
Bruni sem markaði tímamót
Árið 2010 brann trésmiðja Selós að Eyravegi 51 til kaldra kola. Með brunanum lauk áratugalangri framleiðslu á verkstæði fyrirtækisins og markaði það upphaf nýs kafla í sögu Selós.
Áratugir innréttingaframleiðslu
Á þessum áratugum þróaðist Selós í öflugt fyrirtæki í framleiðslu innréttinga. Í trésmiðjunni að Eyravegi 51 voru framleiddar innréttingar fyrir fjölmargar byggingar, þar á meðal skóla, spítala, hjúkrunarheimili og verslanir. Þar voru einnig framleiddar Hansahillur, sem nutu mikilla vinsælda á sínum tíma
Framkvæmdir í uppbyggingu Selfoss
Selós kom að fjölmörgum framkvæmdum á Selfossi á þessum árum. Meðal verkefna var bygging við Gagnfræðaskólann, íþróttahúsið og byggingar útisundlaugar Selfoss.
Trésmiðja reist að Eyravegi 51
Árið 1976 reis trésmiðja Selós að Eyravegi 51 á Selfossi. Með tilkomu hennar þróaðist starfsemi fyrirtækisins og aukin áhersla var lögð á rekstur trésmiðju og framleiðslu innréttinga.
Selós stofnað á Selfossi
Selós var stofnað árið 1973 af þeim Hilmar Björnssyni, Skarphéðni Sveinssyni og Stefáni Jónssyni. Fyrstu árin einbeitti fyrirtækið sér að almennri byggingarverktöku og kom meðal annars að byggingu einbýlis- og raðhúsa á Selfossi.
