Sölustjóri Innréttinga
Sölustjóri – Tækifæri fyrir öflugan liðsmann
Hér er tækifæri fyrir metnaðarfullan einstakling sem vill stýra eigin árangri, byggja upp viðskiptasambönd og njóta góðra tekna í samræmi við framlag sitt.
Við höfum byggt upp sölu- og sýningarsal sem er í fremstu röð. Nú leitum við að þeirri manneskju sem kemur inn, tekur ábyrgð á tækifærinu og nýtir það til fulls.
Hlutverkið
- Sölu- og markaðsstarf á verkatakamarkaði
- Byggja upp tengsl, traust og sterka stöðu á markaðnum
- Greina markaðinn og sækja réttu viðskiptavinina
- Halda kynningar fyrir verktaka, hönnuði og aðra lykilaðila í greininni
- Loka sölum og tryggja hnökralaust ferli yfir til verkefnastjóra
Hvað býðst þér
- Sýningarsalur í fremstu röð sem gefur þér skýrt forskot
- Vinnustaður í mótun – þú hefur raunveruleg áhrif á hvernig hlutirnir þróast
- Sterkur grunnur sem styður þig og vinnur með þér að sameiginlegum markmiðum
- Beint samband milli framlags og tekna – metnaður og frumkvæði skila sér
Við leitum að þér sem…
- Hefur metnað, frumkvæði og raunverulegan vilja til að ná árangri
- Kjark til að sækja viðskipti og loka þeim
- Byggir upp traust og langtímasambönd við viðskiptavini
- Tekur ábyrgð á eigin árangri og lætur til sín taka
Finnst þér þetta vera þitt tækifæri? Þá viljum við heyra frá þér.
Umsóknarfrestur er til 15.apríl.
